Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 17:58:21 (2438)


[17:58]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég þarf í rauninni ekkert að ræða þetta mál meira. Það hefur komið fram hér að hæstv. félmrh. treystir sér ekki til að svara því játandi hvort hún styður fjárlagafrv. Það eru náttúrlega ekkert komnar inn í þetta frv. neinar húsaleigubætur til dæmis. En ég þarf í rauninni ekkert að ræða þetta mál frekar við hæstv. félmrh., hennar afstaða kemur fram í atkvæðagreiðslu og hún verður spennandi.