[21:54]
Árni Johnsen (andsvar) :
Hæstv. forseti. Auðvitað hlýtur vilji manna að standa til þess að Háskólinn á Akureyri verði efldur. En menn hljóta jafnframt að gera sér grein fyrir því að starfsemin og grunnurinn í Háskóla Íslands verður ekki stöðvaður. Það hlýtur að eiga að nýta hann, nýta þá þekkingu og reynslu sem þar býr og alveg sama hvort menn eru að tala þar um líffræðideild, verkfræðideild, hagfræðideild eða aðrar deildir, þá hljóta menn að stunda þar rannsóknastarfsemi óháð og kannski að sumu leyti samtengt því sem er að gerast á Akureyri með þeim þroska sem sá skóli á eftir að vinna sér. Háskóli verður ekki háskóli með vísindalegan grunn á fáum árum. Það tekur einfaldlega lengri tíma en 2--3 ár. Ugglaust má reikna með a.m.k. 10--20 árum með marvissri stefnu, starfsemi og fjármagni að skapa slíkan grunn. En það þýðir ekki það að á sama tíma eigi ekki að nota móðurskipið, Háskóla Íslands, og þekkinguna og reynsluna sem þar býr. Það er það sem þeir eru að gera í þessu verkefni. ( FI: Lögðu þeir áherslu á Vestmannaeyjar?) Og til að mynda er það alveg ljóst að þegar sótt er í rannsóknasjóði erlendis, hina svokölluðu stóru sjóði, þá byggjast möguleikar á fjármagni úr þeim á því að sterk staða, vísindaleg staða, að prófessorsembætti við virtan skóla standi á bak við það. Og í þessu samstarfsverkefni eru þar rétt valdir fulltrúar Háskóla Íslands sem sækja um og leggja þetta erindi fyrir fjárln.