[01:37]
Hjörleifur Guttormsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ræðutíminn er ekki vandamálið í þessum efnum, það er mikill misskilningur. Spurningin er um það hvernig menn vilja haga þessum störfum, hvaða vilja menn hafa í þeim efnum og það voru ekki þeir sem --- ýmsir þeir ræddu þessi mál í lok síðasta kjörtímabils sem drógu lappirnar í sambandi við breytingar á vinnubrögðum. Ég held að ég geti bent á þingtíðindi því til staðfestingar að ég hvatti mjög eindregið til gjörbreyttra vinnubragða í sambandi við fjárlagagerðina. Menn tækju t.d. mun stærri skref í sambandi við samstarf fjárln. og fagnefnda. Menn tækju fyrir málefnaflokka í sambandi við fjárlagagerðina og fjárlagafrv. endurspeglaði í raun með miklu skýrari hætti áherslur stjórnvalda, ríkisstjórnar, í sambandi við einstaka málaflokka. Það þarf ekki annað en líta í fjárlagafrumvörp nágrannalanda til að sjá allt annan svip á þessum málum, t.d. í umhverfismálunum sem ég hef gert hér að umræðuefni. Það fylgir sérstök græn bók sem fylgirit með fjárlagafrv. af hálfu umhvrn. norska, svo litið sé til Noregs, þar sem saman er dregið allt það sem snertir umhverfismál óháð því hvort það er beint undir umhvrn. eða utanrrn. eða hvaða ráðuneyti leggur það til. Þetta lesa menn í samfellu í fjárlagafrv. þar í landi. Ég hef hvatt til þess að það verði hér umræða um hvern einstakan málaflokk þar sem skipst verði á skoðunum sérstaklega við
viðkomandi fagráðherra og það í aðdraganda 2. umr. fjárlaga þar sem menn taka að lokum á málinu til afgreiðslu í ljósi fram kominna tillagna frá fjárln. og öðrum.