[11:16]
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
Virðulegur forseti. Undir lið 49--55 er verið að bæta sjúkrahúsunum upp þá skerðingu sem fyrirhuguð var í fjárlagafrv., þ.e. það átti að skera niður rekstur leikskóla hjá sjúkrahúsunum. Nú liggur það fyrir að þetta mál hefur fengið tímabundna lausn, ekki varanlega þannig að hægt sé að sætta sig við það, en þarna er þó ákveðin úrbót gerð og þess vegna mun ég greiða atkvæði með þessu en gera jafnframt þá athugasemd að þetta mál hefur ekki enn verið leyst til frambúðar.