Fjárlög 1994

54. fundur
Föstudaginn 10. desember 1993, kl. 11:28:40 (2525)

[11:28]
     Matthías Bjarnason :
    Virðulegi forseti. Ég tel að það liggi engan veginn fyrir að stofnkostnaður ferju- og flóabáta sem ríkissjóður var búinn að taka á sig ábyrgð á færist í gegnum fjárlög sjálfkrafa á hendur Vegagerð ríkisins. Ég er andsnúinn því að það verði gert og greiði því ekki atkvæði um þennan lið.