Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

54. fundur
Föstudaginn 10. desember 1993, kl. 15:54:02 (2557)


[15:54]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. skýrari svör. En vissulega eru það nokkuð nýjar fréttir að þarna hafi verið tekin ákvörðun um að víkja verulega frá því sem ríkisstjórnin var búin að segja Alþingi að væru sínar tillögur og ekki voru þá neinir fyrirvarar um. Það er ekki svo ýkja langt síðan þessi mál voru hér til ítarlegrar umræðu og þá kom ekkert fram um það. Og ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta hafi verið lagt undir nefndir þingsins, utanrmn. eða landbn. ( Landbrh.: Ég er búinn með andsvör.)