Stjórn fiskveiða

55. fundur
Föstudaginn 10. desember 1993, kl. 17:52:31 (2582)


[17:52]
     Rannveig Guðmundsdóttir :
    Virðulegi forseti. Þetta mál er flutt af sjútvn. en á fundi þingflokksformanna með forseta var það kynnt fyrir okkur fyrr í dag, og fyrirhuguð afgreiðsla þess á þessum degi, og helst að reyna að ljúka afgreiðslu hratt hér í dag.
    Ég hef tekið þetta mál fyrir og kynnt efni þess í þingflokki Alþfl. og við viljum standa að þessu máli og greiða götu þess í dag þannig að málið verði afgreitt fljótt og vel. Mér fannst mikilvægt að koma hér upp og lýsa þessu yfir þar sem fulltrúi okkar flokks í nefndinni er ekki á þessum fundi.