[18:23]
Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Fyrst vegna þess að lítið sé að gera í menntmn. Mér er alveg ljóst að ég hef ekki með frumvarpaflutningi íþyngt starfi menntmn., mér liggur nú við að segja því miður, en ég vissi það áður en þing hófst að frumvörp þau sem ég hyggst flytja á þessu þingi yrðu vart tilbúin fyrr en á síðari hluta þings.
Spurningin um á hvaða grunni verður byggt, að því er ég skildi hv. þm., þegar ákveðið verður hvaða fé sveitarfélögin fá til þess að taka við grunnskólanum að fullu og öllu, þá verður að sjálfsögðu metið hvað það kostar að framfylgja nýjum grunnskólalögum, ekki þeim sem nú eru í gildi heldur samkvæmt nýjum lögum. Það hlýtur að verða viðmiðunin. Ef við værum hins vegar að yfirfæra tekjustofna sem svöruðu til núgildandi grunnskólalaga, þá yrðu þessar 160 millj. að sjálfsögðu með í matinu. En það verður ekki það sem við komum til með að miða við. Það liggur held ég alveg í augum uppi að það verður að meta hvað ný grunnskólalög kosta í framkvæmd að fullu og öllu og það verður sú yfirfærsla sem þarf að eiga sér stað á tekjustofnum til sveitarfélaganna þegar þau hafa tekið við grunnskólanum að fullu og öllu, væntanlega 1995.