Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

57. fundur
Föstudaginn 10. desember 1993, kl. 18:58:47 (2593)


[18:58]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Það er rétt sem hv. þm. segir að við höfum löngum verið um það vændir að leyfa stjórnarandstöðu ekki að fylgjast með. Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að ég telji að þetta sé algerlega ómaklegt. Það er á hinn bóginn rétt að atburðarásin er mjög hröð núna um þessar undir og auðvitað er sjálfsagt að kynna nefndum þingsins þessi mál um leið og endanleg gögn liggja fyrir og málið hefur fengið fasta mynd.