Sjálfbær atvinnuþróun í Mývatnssveit

58. fundur
Þriðjudaginn 14. desember 1993, kl. 14:13:27 (2613)


[14:13]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum svarið sem var fullkomlega heiðarlegt að mínu mati. Það er ekki ástæða til þess að taka stærri ákvarðanir en var gert á síðasta ári um að takmarka í framtíðinni námuvinnslu í Mývatni fyrr en menn hafa betri og traustari gögn til að byggja á.