Alþjóðasamningur um ábyrgð vegna tjóns af völdum olíumengunar

59. fundur
Þriðjudaginn 14. desember 1993, kl. 15:54:39 (2640)

[15:54]
     Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Frú forseti. Ég mæli fyrir nál. utanrmn. um till. til þál. um staðfestingu bókunar við alþjóðasamning um einkaréttarlega ábyrgð vegna tjóns af völdum olíumengunar og bókunar við alþjóðasamning um stofnun alþjóðasjóðs til að bæta tjón af völdum olíumengunar. Álit nefndarinnar er birt á þskj. 367.
    Nefndin sendi tillöguna til umsagnar umhvn. og mælti umhvn. með samþykkt tillögunnar og það gerir utanrmn. einnig samhljóða en Rannveig Guðmundsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Með áliti utanrmn. birtist umsögn umhvn. um málið.