Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

60. fundur
Þriðjudaginn 14. desember 1993, kl. 16:50:29 (2652)


[16:50]
     Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Svar mitt til hv. þm. Finns Ingólfssonar er nei. Ég tel það nú ekki á þessu stigi

en ég hygg hins vegar að þetta sé mál sem sé alveg þess virði að ræða mjög ítarlega í þeim nefndum sem munu um þetta fjalla. Ég geri ráð fyrir því að hv. þm. muni þar færa fram sín rök gegn þessari breytingu sem við erum hér að ræða um. Ég geri mér grein fyrir því að það kunni að þurfa í framhaldi af þessu að breyta einhverjum lögum og reglugerðum.