Ráðstöfun aflaheimilda Hagræðingarsjóðs

61. fundur
Miðvikudaginn 15. desember 1993, kl. 21:31:26 (2710)


[21:31]
     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þótt ræða hv. þm. hafi að mörgu leyti verið skynsamleg þá langar mig að spyrja hann um eitt sem mér þykir alveg með ólíkindum og hlýtur að vera einhver misskilningur hjá hv. þm. Hvað hefur hann fyrir sér í því að Kvennalistinn hafi áhuga á því að leggja auðlindaskatt á sjávarútveginn?