Ráðstöfun aflaheimilda Hagræðingarsjóðs

61. fundur
Miðvikudaginn 15. desember 1993, kl. 21:32:16 (2712)


[21:32]
     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vona að hæstv. forseti afsaki orðbragðið, en þetta er þvættingur. Við höfum ekki léð máls á þessu, þvert á móti viljum við að aflaheimildum sé ráðstafað til byggðalaga og það án þess að gjald komi fyrir. Mér þætti gaman að vita hvað hv. þm. er að tala um.