Ráðstöfun aflaheimilda Hagræðingarsjóðs

61. fundur
Miðvikudaginn 15. desember 1993, kl. 21:48:44 (2718)


[21:48]
     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Við þurfum ekki að vera að karpa um þetta, hv. þm. Jóhann Ársælsson, hann viðurkenndi það sem ég var að segja áðan og var kjarninn í því sem ég sagði um stefnu Alþb. Við höfum rætt hana hér áður og það hefur ekkert verið ágreiningur þar um. Við höfum túlkað hana báðir eins og hún er skýr. En ég vil segja hv. þm. að það er alveg ljóst hjá okkur framsóknarmönnum að það hefur aldrei hvarflað að okkur að sjómenn ættu að taka þátt í því að fjármagna einhver kaup á veiðirétti. Það hefur aldrei hvarflað að okkur framsóknarmönnum.