[21:59]
Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég varð fyrir töluverðum vonbrigðum með ræðu hv. 1. þm. Vestf. einfaldlega vegna þess að ég held að hann skilji það mjög vel að það þarf að leita einhvers hóps sem vill bera ábyrgð á breytingu á lögunum um stjórn fiskveiða hér í Alþingi til þess að það sé hægt að leysa þau vandamál sem sjómenn eru að takast á við í þessu verkfalli. Og það þarf þess vegna að nota þann tíma sem fyrir hendi er til að gera það. Ég tel að hv. 1. þm. Vestf. hafi til þess möguleika meira heldur en aðrir menn hér í hv. Alþingi og ég held að það væri til heilla fyrir þingið sem ber auðvitað alveg sérstaka ábyrgð á þessu deilumáli vegna þess að lögin um stjórn fiskveiða hafa misheppnast með þeim hætti að sjómenn eru látnir bera kostnaðin af kvótabraski hér allt í kringum landið. Og hverjir aðrir en alþingismenn ættu að finna fyrir þeirri ábyrgð? Það er það sem ég held að þingmenn þurfi að hugsa um. Og það er þess vegna sem á að fara að leita samstöðu um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem geta komið til móts við sjómenn í þessari deilu. Og ég bið menn bara að vera ekki að festast of mikið í þessu fari sem hér er, að stjórnarliðar haldi ekki þessum málum í sínum höndum og komi í veg fyrir að það sé hægt að ná saman einhverjum hópi manna hér í þinginu. Við vitum ósköp vel að flokkarnir eru meira og minna klofnir í afstöðunni til þessa máls. Og ef það á að nást farsæl niðurstaða þarf að leita samráðs og hóps sem vill bera ábyrgð á breytingum á kerfinu.