Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

61. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 01:20:47 (2770)


[01:20]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Það hefur öllum fyrirspurnum hv. þm. verið svarað í stuttu máli. Hvað hann telur nauðsynlegt til þess að ávinna sér virðingu er auðvitað hans mál. Ég ber á vissan hátt virðingu fyrir honum sem þingmanni. Ég tel hins vegar ekki að það sé honum til álitsauka að halda allar þessar löngu og innihaldslausu ræður.