Félagsleg aðstoð

63. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 18:16:03 (2862)


[18:16]
     Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Virðulegi forseti. Á þskj. 415 er brtt. til 3. umr. sem samkomulag varð um að flytja í heilbr.- og trn. Hún er við 14. gr. Í stað þess að gildistakan miðist við gildistöku EES-samnings, þá gerum við tillögu um að lögin öðlist gildi 1. janúar árið 1994.