Afgreiðsla mála á dagskrá

63. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 18:18:47 (2864)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vekur athygli á því að á dagskránni eru allmörg mál og þess er að vænta að 13. dagskrármálið megi koma fyrir síðar á fundinum, en fundahaldið hefur verið skipulagt með samkomulagi a.m.k. margra aðila með þeim hætti að nú komi á dagskrá 6. dagskrármálið eins og forseti hafði kynnt.