Prestssetur

63. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 21:47:35 (2873)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Það er alger misskilningur að forseti hafi skilyrt það hvenær þetta mál verður tekið fyrir. Forseti var einungis að skýra frá því að þegar lokið væri umræðu um það mál sem frestað var umræðu um þegar kvöldmatarhlé var gert, þá mundi þetta mál verða tekið fyrir strax. Það yrði næsta mál þó að það væri síðasta mál á dagskránni.