Almannatryggingar

63. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 23:05:45 (2889)

[23:05]
     Ingibjörg Pálmadóttir :
    Virðulegi forseti. Minni hlutinn dregur sína tillögu til baka sökum þess að hæstv. heilbrrh. gerði grein fyrir því í umræðum að hann mundi endurskoða almannatryggingalöggjöfina í heild sinni og taka til greina þær brtt. sem við vorum með. Við viljum ekki láta fella þær hér í atkvæðagreiðslu. Þar af leiðandi drögum við þær til baka.