Prestssetur

63. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 23:18:07 (2893)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Sá forseti sem hér stendur tók þetta mál á dagskrá þegar umræða um það hófst og tók á dagskrá 6. dagskrármálið. Ekki hafði borist til forseta ósk um að taka málin bæði fyrir í senn. Hitt er rétt að nefndarálit um bæði málin er sameiginlegt og að lokinni umræðu um þetta dagskrármál fer þegar fram umræða um næsta dagskrármál, þ.e. 7. dagskrármál um kirkjumálasjóð. Vænti ég að sú skipan sé fullnægjandi fyrir hv. þm.