Prestssetur

63. fundur
Föstudaginn 17. desember 1993, kl. 01:14:57 (2902)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti tekur fram að þetta er 2. umr. og þrátt fyrir að hæstv. fjmrh. sé eigi viðstaddur þessa umræðu þá getur gefist tækifæri til að spyrja hann spurninga við 3. umr. Hér hefur verið við þessa umræðu og er enn hæstv. dómsmrh. sem hefur með forræði þessa máls að gera og hefur svarað fyrirspurnum sem til hans hefur verið beint.