Iðnlánasjóður

65. fundur
Föstudaginn 17. desember 1993, kl. 18:04:26 (2944)

[18:04]
     Frsm. iðnn. (Tómas Ingi Olrich) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 76/1987, um Iðnlánasjóð, með síðari breytingum, og frv. til laga um iðnaðarmálagjald.
    Nefndarálit iðnn. er svohljóðandi:
    ,,Nefndin hefur fjallað um málin og með vísan til 1. mgr. 30 gr. þingskapa skilar hún einu áliti um þau bæði. Frumvörpin eru flutt vegna þess að aðstöðugjald, sem hefur verið notað sem gjaldstofn bæði iðnlánasjóðsgjalds og iðnaðarmálagjalds, hefur verið fellt niður. Með frumvarpinu er gjöldunum markaður nýr gjaldstofn.
    Nefndin fékk á sinn fund til viðræðna um málið Finn Sveinbjörnsson, skrifstofustjóra í iðnaðarráðuneytinu, Pál Ásgrímsson, lögfræðing í sama ráðuneyti, og Svein Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Þá barst nefndinni afrit af bréfi Samtaka íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja þar sem lýst er stuðningi við frumvarpið.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins en þeir nefndarmenn, sem rita undir álitið með fyrirvara, áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum er fram kunna að koma.
    Þeir sem skrifa undir nál. eru: Svavar Gestsson form., með fyrirvara., Pálmi Jónsson, Tómas Ingi Olrich, Sigríður A. Þórðardóttir, Guðjón Guðmundsson, Valgerður Gunnarsdóttir, Kristín Einarsdóttir með fyrirvara, Elín R. Líndal með fyrirvara og Finnur Ingólfsson með fyrirvara.
    Rétt er að geta þess þegar mælt er fyrir þessu nál. að það kom fram á fundi nefndarinnar með fulltrúum ráðuneytisins að breytingar á gjaldstofninum eiga ekki að hækka né heldur að lækka þetta gjald. Ef um slíkar breytingar yrði að ræða þegar málið kæmi til framkvæmda er gert ráð fyrir því að gripið verði til sérstakra ráðstafana af því tilefni.