Framleiðsla og sala á búvörum

66. fundur
Föstudaginn 17. desember 1993, kl. 23:22:04 (2972)


[23:22]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það er tvennt sem ég vil nefna. Í fyrsta lagi sagði hæstv. ráðherra að tortryggni manna á umfjöllun málsins, sem mælt er fyrir um í þessari lagagrein, hvernig leggja eigi málið fyrir ríkisstjórn m.a., væri af pólitískum toga en ekki efnislegum. Það er að nokkru leyti rétt einfaldlega vegna þess að það er mín skoðun að ástæðan fyrir því að þetta er komið hér inn sé einmitt af pólitískum toga en ekki efnislegum.
    Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telur það í ætt við vandaða umfjöllun þingnefndar á máli sem þessu ef hún á, eins og menn eru búnir að leggja plan um framhaldið, að láta sér nægja að hittast í hádeginu í morgun á eins klukkutíma fundi meðan umræða er væntanlega í gangi í þinginu að öðru leyti.