[00:10]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þessu hafði ég nú þegar svarað, hinu síðasta, að ég tel að það eigi að fara í þá átt að auka sjálfsforræði kirkjunnar. Ég tel hins vegar að ekki sé hægt að fara of hratt með öðrum fætinum og of hægt með hinum eða á eðlilegum gönguhraða því það hlýtur að koma einhver skekkja þá inn. Ég held að þetta verði einfaldlega að takast skref fyrir skref. Ég styð þá grundvallarhugsun sem er í þeim breytingum sem hér er verið að gera og ég gerði það einnig í nefndarstarfinu, og ég legg áherslu á að þetta verður að gera yfirvegað og við vorum einfaldlega að fara fram úr okkur ef við hefðum farið hraðar en þetta. Því tel ég að hér í umræðu hafi tekist mjög skynsamleg sátt, hvað svo sem framtíðin ber í skauti sér.