Montreal-bókun um efni sem valda rýrnun ósonlagsins

67. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 11:44:34 (3042)

[11:44]
     Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti utanrmn. um till. til þál. um fullgildingu breytingar á Montreal-bókun um efni sem valda rýrnun ósonlagsins. Nefndin hefur fjallað um tillöguna og mælir með samþykkt hennar. Nefndin sendi tillöguna til umsagnar umhvn. sem skilaði ítarlegu áliti og er þar mælt með samþykkt hennar. Umsögn umhvn. er birt sem fylgiskjal með áliti utanrmn.
    Allir nefndarmenn utanrmn. mæla með því að þessi tillaga verði samþykkt.