[13:09]
Jóhann Ársælsson :
Hæstv. forseti. Ég skrifa undir nál. og mun styðja þetta frv. og tel ástæðu til þess að greiða fyrir því í gegnum þingið en það verður ekki hjá því komist að minnast aðeins á þá hörmungarsögu sem þetta mál hefur í fortíðinni. Hér hafa menn staðið í því að fá þessa gerð í langan tíma bæði fyrir síðasta ár og núna. Það er ekki séð fyrir endann á því enn þá, það er ekki búið að koma þessu í endanlegan farveg og ekki sjáanlegt að það sé samstaða um að klára þessi sjávarútvegsmál hér í þinginu þannig að menn vita auðvitað ekki hvernig þessu lyktar fyrir þarnæsta tímabil.
Ég vil láta koma fram og rifja upp að þó svo ég styðji frv. tel ég að það hafi verið mikið slys að menn jöfnuðu ekki meira út því áfalli sem nú er að ríða yfir landsbyggðina vegna þorskskerðingarinnar. Það var hægt að gera það og var einfalt og auðvelt en menn kusu að gera það ekki. Ef aflaheimildum hefði verið úthlutað með það fyrir augum að jafna þessa skerðingu út þá hefðum við setið uppi með eitthvað í kringum 3% skerðingu á allan flotann. En menn völdu þá leiðina að verja eignakerfi á aflaheimildunum og mátu það meira en reyna að koma í veg fyrir þennan skell. Það er mikið áfall fyrir þær byggðir, sem byggja mest á þorskveiðunum, að það skyldi ekki takast að jafna þessu meira út en gert hefur verið.
Það er mikill munur á að verða fyrir 10% skerðingu ár eftir ár eins og nú liggur fyrir eða ef það hefði tekist að koma henni niður í 3% eins og hefði verið hægt að gera.
Þegar þetta mál kom til 1. umr. urðu töluverðar umræður um stöðu sjávarútvegsmálanna og það að sjómannaverkfall er yfirvofandi. Ég ætla ekki að setja á ræður um þau málefni núna vegna þess að það liggur fyrir nú að það verður fundur með forráðamönnum sjómanna og sjútvn. þingsins í dag og það var það sem ég og fleiri vorum að fara fram á í þeim umræðum að það kæmist á eitthvert samband og það yrði hægt að leita leiða til þess að þingið legði sitt af mörkum til að liðka fyrir því að þessi vinnudeila leystist.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég mun styðja þetta frv. og stjórnarandstaðan hefur sýnt ábyrgð og ekki verið með neitt málþóf og verður ekki svo ég viti til. Þrátt fyrir að hún hafi lagt þessar tillögur ítrekað fram og verið rekin til baka með þær af meiri hlutanum þá munu menn styðja eftir því sem ég best veit niðurstöðuna eins og hún liggur nú fyrir.