Tekjustofnar sveitarfélaga

68. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 14:16:38 (3065)

[14:16]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Ég mun greiða atkvæði gegn þessari tillögu. Ég tel ekki fært a.m.k. fyrir þingmenn Reykvíkinga að taka þátt í þeirri endileysu sem hér er í gangi. Auðvitað ætti það heldur ekki að vera fært fyrir þingmenn stjórnarflokkanna t.d. af landsbyggðinni, en ég sé að það snjóar upp grænum lit á þessa hlemmi frá stjórnarþingmönnum utan af landi sem eru að lappa upp á borgarstjórnaríhaldið með þessum hætti. Ég segi nei, hæstv. forseti.