Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

69. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 15:00:15 (3075)


[15:00]
     Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Kristín Ástgeirsdóttir) (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég teldi eðlilegt að við fengjum niðurstöðu í það hvenær þessi nefndarfundur á að hefjast því ég er að fara að gera grein fyrir áliti minni hluta efh.- og viðskn. sem ég byggi á þeim bréfum sem nefndinni bárust frá m.a. minni hluta menntmn., heilbr.- og trn. og félmn. og ég þarf nokkurn tíma í að gera þetta. Mér þætti því verra ef nefndarmenn geta ekki verið viðstaddir mína ræðu og teldi því rétt að við fengjum niðurstöðu í það hvenær nefndarfundur á að hefjast.