Fjárlög 1994

70. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 19:50:38 (3099)

[19:50]
     Sigríður A. Þórðardóttir :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir brtt. á þskj. 419 við frv. til fjárlaga fyrir árið 1994 frá menntmn. Menntmn. hefur fjallað um úthlutun heiðurslauna listamanna fyrir næsta ár. Af þeim 18 sem hlutu heiðurslaun á þessu ári eru tveir látnir. Að þeim frátöldum leggur nefndin til að sömu listamenn og hljóta heiðurslaun í ár njóti þeirra á árinu 1994. Þeir eru: Atli Heimir Sveinsson, Árni Kristjánsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Halldór Laxness, Hannes Pétursson, Indriði G. Þorsteinsson, Jakobína Sigurðardóttir, Jón Nordal, Jón úr Vör, Jórunn Viðar, Kristján Davíðsson, María Markan, Matthías Jóhannessen, Sigfús Halldórsson, Stefán Íslandi og Thor Vilhjálmsson.
    Jafnframt gerir nefndin tillögu um að hver heiðurslaun hækki úr 850 þús. kr. í 875 þús. kr. Menntmn. stendur einróma að þessari tillögu.