Skattamál

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 11:04:27 (3120)


[11:04]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegur forseti. Deila má um það hvort þetta sé sú kjarabót sem að var stefnt og samningar milli launþegasamtaka, vinnuveitenda og ríkisvaldsins kváðu á um. Ég veit að framkvæmdin getur kallað á vissa erfiðleika en ég tel þó að þetta sé áfangi í þá átt að fella niður matarskattinn alveg sem ég tel vera grundvallaratriði og þess vegna segi ég já.