Skattamál

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 11:36:31 (3129)


[11:36]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hér er í raun og veru verið að taka aftur upp aðstöðugjald, þ.e. hér á að koma á í litlum mæli gjaldtöku sem byggir á veltu svipað og aðstöðugjaldið gerði. Ég tek ekki afstöðu til þess hvort menn vilja fara að búa til nýtt aðstöðugjald með þessu og greiði því ekki atkvæði.