Framleiðsla og sala á búvörum

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 15:24:52 (3151)


[15:24]
     Frsm. meiri hluta landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Samráð milli ráðuneyta að framgangi þessara mála var ekki fyrir hendi í lögunum eins og þau eru að óbreyttu. Samráðið við bændasamtökin er í lögunum og þess vegna ber ekki að leggja þetta hvort tveggja að jöfnu. Lögin eru, eins og ég hef áður sagt, skýr að þessu leyti. Fyrri mgr. 52.

gr. er hverjum læsum manni fullkomlega skiljanleg og ég hef ekkert við fyrri orð mín að bæta í þessum efnum.