Framleiðsla og sala á búvörum

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 16:16:28 (3170)


[16:16]
     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hef áður lýst ánægju minni með það pólitíska samkomulag sem tekist hefur milli stjórnarflokkanna. Nú gefst mér sérstakt tilefni til að lýsa ánægju minni enn frekar yfir því samkomulagi sem tekist hefur þá a.m.k. við þann hluta stjórnarandstöðunnar sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson á annað borð talar fyrir því að hann er ákaflega ánægður með þetta samkomulag líka. Og þá bíð ég bara eftir því að fulltrúar Kvennalistans og Framsfl. komi hér upp og lýsi jafnframt ánægju sinni. Þá getum við kallað þetta virkilega þjóðarsátt.