Skattamál

72. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 21:41:12 (3212)

[21:41]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Ég vil gjarnan staðfesta það sem hv. 5. þm. Norðurl. v. orðaði að ríkisstjórnin mun skipa nefnd með aðild þeirra stjórnmálaflokka og samtaka er sæti eiga á Alþingi og kjósa að taka þátt í slíku starfi til að fjalla um og undirbúa frv. til laga um fjárhagslegan stuðning við stjórnmálaflokka og þá þætti sem slíkum stuðningi tengjast.