[22:48]
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er rétt sem hv. þm. segir, það verður engri ábyrgð af niðurstöðu Alþingis varpað á herðar annarra. Það eina sem hægt er að gera er að skýra hverra kosta var völ og síðan verður hver og einn alþingismaður að gera það upp við sig hvort hann treystir sér til að taka áhættuna af þeim kosti sem gæti leitt til verkfalla og kollsteypu.
Hv. þm. spurði: Hvaða gögn voru lögð fyrir þá aðila í forustu verkalýðshreyfingarinnar sem um þetta mál fjölluðu? Ég skal telja upp nokkur. Niðurstöður af skýrslu um þetta mál frá Svíþjóð 1983, sem heitir því merkilega nafni ,,Skal matmomsen släppas?`` Skýrsla frá Svíþjóð 1989 ,,Reformerad mervärdiskatt med mera`` Tvær skýrslur um úttektir á vegum breska fjármálaráðuneytisins um þetta mál frá 1985 og 1992. Norsk skýrsla frá árinu 1993. Fyrir utan niðurstöður athugana á grundvelli neyslukönnunar Hagstofu Íslands. Fyrir utan allar þær upplýsingar aðrar sem fluttar voru munnlega á grundvelli upplýsinga sem legið hafa fyrir í fjmrn. frá því að þetta mál kom fyrst til rannsókna þar snemma á síðasta áratug.