Skattamál

72. fundur
Þriðjudaginn 21. desember 1993, kl. 00:56:31 (3252)


[00:56]
     Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Bókhald stjórnmálaflokka er opið að því leyti til að það er alveg jafnopið og bókhald allra annarra félaga sem starfa á almennum grundvelli. Ég veit ekki betur en að þau flokksfélög sem starfa í landinu haldi aðalfundi og þau komi þar fram með sína reikninga og geri grein fyrir þeim fyrir sínum félögum og að tala um það að bókhaldið sé harðlæst og lokað er bara tóm vitleysa.