[01:02]
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
Virðulegur forseti. Það er kannski tímanna tákn og til marks um sérhyggju flokkanna að hér skyldu þrír stjórnmálaflokkar standa að því að fella það að það kæmi inn að framlög til þróunarhjálpar væru frádráttarbær frá skatti rétt eins og framlög til stjórnmálaflokka sem hér er verið að gera tillögu um að tekin séu inn í þetta ákvæði. Ég vil benda á það að með þessu ákvæði eins og það liggur hér fyrir er ekki aðeins verið að bæta stjórnmálaflokkunum inn í þessa upptalningu heldur er jafnframt verið að breikka þann stofn sem miðað er við þegar talað er um 0,5% af tekjum. Það hefur verið tekið út úr þessu takmarkandi ákvæði sem er í frv. sem hér liggur fyrir, þannig að það er bæði verið að taka inn stjórnmálaflokkana og breikka stofninn. Ég held að þetta ákvæði auki hættuna á hagsmunatengslum flokkanna við fyrirtækin og ég mun því greiða atkvæði gegn þessu.