Framleiðsla og sala á búvörum

72. fundur
Þriðjudaginn 21. desember 1993, kl. 01:32:56 (3257)


[01:32]
     Guðni Ágústsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Við framsóknarmenn höfum við 2. umr. lýst okkur fylgjandi meginatriðum þessa frv., þ.e. að landbrh. á hverjum tíma fari með forræði og veiti heimildir til innflutnings á landbúnaðarvörum í samræmi við fríverslunar- og milliríkjasamninga og skuli ákveða upphæð verðjöfnunargjalda. Hins vegar lýsum við andstöðu við embættismannanefnd með valdi sem er til þess að þessi mál verði í áframhaldandi stríðsástandi öllum aðilum til skaða, ekki síst íslenskri landbúnaðarframleiðslu, en vegir ríkisstjórnarinnar eru órannsakanlegir. Við munum ekki taka þátt í þessari atkvæðagreiðslu, við munum sitja hjá.