[02:13]
Heilbrigðisráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) :
Virðulegi forseti. Vegna verkefna og fjármála stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík vil ég lýsa yfir eftirfarandi: Af óskiptum 304 millj. kr. til reksturs og framkvæmda á liðnum 08-370, Sjúkrahús með fjölþætta starfsemi, verður einkanlega dreift á Ríkisspítala, Borgarspítala og Landakot. Verður það gert í samráði við fjárln. í ljósi þeirra tillagna sem fram munu koma fljótlega um verkaskiptingu þessara sjúkrahúsa, sérstaklega þá varðandi rekstur barnadeildar Landakots, tímasetningar væntanlegs flutnings hennar og framtíðarfyrirkomulag þeirra mála. Horft verður jöfnum höndum til umfangs verkefna spítalanna þriggja og fjárhagsstöðu þeirra við skiptingu þessa fjármagns.