[03:04]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
Frú forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 117. löggjafarþings, frá 20. desember 1993, eða síðar ef nauðsyn krefur, til 24. janúar 1994.
_____________
Davíð Oddsson.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``
Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 117. löggjafarþings, er frestað.
Ég leyfi mér að óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.