Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 1 . mál.


338. Breytingartillaga



við frv. til fjárlaga fyrir árið 1994.

Frá Ingibjörgu Pálmadóttur.



    Við 6. gr. Nýr liður:
    3.60    Að afhenda Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ) til eignar eftirtaldar eignir sem þau hafa nú til afnota að Staðarfelli í Dölum:
                       — gamla skólahúsið,
                       — kennaraíbúðir (tvö hús),
                       — kyndi- og rafstöðvarhús.