Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 156 . mál.


768. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á sveitarstjórnarlögum, nr. 8/1986.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið á tveimur þingum. Á 116. löggjafarþingi fékk nefndin á fund sinn Vilhjálm Vilhjálmsson, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þá bárust henni umsagnir frá hreppsnefndum Öxnadalshrepps, Tjörneshrepps, Hraungerðishrepps, Fellahrepps, Hofshrepps, Borgarhrepps, Stöðvarhrepps og Miklaholtshrepps, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, héraðsnefnd Mýrasýslu og héraðsnefnd Múlasýslna.
    Nefndin fellst á það meginatriði frumvarpsins að sveitarfélag verði ekki sameinað öðrum sveitarfélögum nema meiri hluti þeirra sem taka afstöðu til sameiningarinnar í atkvæðagreiðslu sé því samþykkur. Á hinn bóginn þykir rétt að fella brott þann þátt frumvarpsins sem gerir ráð fyrir að meiri hluti atkvæðisbærra íbúa þurfi að taka þátt í atkvæðagreiðslunni svo að hún sé gild, enda eru slík ákvæði ekki í lögum um kosningar til sveitarstjórna. Er þessi afgreiðsla í samræmi við álit Sambands íslenskra sveitarfélaga.
    Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    Orðin „enda hafi meiri hluti atkvæðisbærra íbúa tekið þátt í atkvæðagreiðslunni“ í 1. gr. falli brott.

Alþingi, 16. mars 1994.



Rannveig Guðmundsdóttir,

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.

Gísli S. Einarsson.


form., frsm.



Ingibjörg Pálmadóttir.

Eggert Haukdal.

Guðjón Guðmundsson.



Einar K. Guðfinnsson.

Kristinn H. Gunnarsson.

Jón Kristjánsson.