Ferill 72. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 72 . mál.


790. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 21 5. maí 1990, um lögheimili.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á fund sinn Þórð Skúlason, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, Þorbjörn Hlyn Árnason biskupsritara og frá Hagstofu Íslands Hallgrím Snorrason hagstofustjóra og Skúla Guðmundsson skrifstofustjóra. Nefndinni bárust á 116. löggjafarþingi umsagnir frá Félagi eldri borgara, Landssambandi aldraðra og Hagstofu Íslands og á 117. löggjafarþingi frá félagsmálaráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    Frumvarp þetta var afgreitt frá allsherjarnefnd á síðasta þingi en dagaði uppi vegna ófyrirsjáanlegra þingloka.
    Með frumvarpinu er lagt til að tekin verði í lögheimilislög heimild til handa þeim sem búa á dvalarheimili eða í húsnæði, sem ætlað er öldruðum, til að eiga áfram lögheimili þar sem þeir höfðu fasta búsetu áður.
    Núgildandi lögheimilislög voru samþykkt á Alþingi 21. apríl 1990 og tóku gildi 5. maí sama ár. Meginregla samkvæmt lögunum er að maður eigi lögheimili þar sem hann hefur fasta búsetu, en jafnframt eru gerðar undantekningar frá þeirri reglu hvað varðar námsmenn, alþingismenn og ráðherra.
    Fram hefur komið við framkvæmd laganna að þau geta leitt til verulega ósanngjarnrar niðurstöðu gagnvart öldruðu fólki. Verði frumvarpið að lögum geta aldraðir átt val um hvort þeir kjósa að halda lögheimili í sínu gamla sveitarfélagi og getur slíkt verið verulegt réttlætismál, t.d. ef annað hjóna flytur einhverra aðstæðna vegna á dvalarheimili á undan hinu.
    Meiri hluti nefndarinnar telur að um réttlætismál sé að ræða og leggur því til að frumvarpið verði samþykkt.

Alþingi, 17. mars 1994.



Kristinn H. Gunnarsson,

Jón Helgason.

Ólafur Þ. Þórðarson.


frsm.



Anna Ólafsdóttir Björnsson.

Ingi Björn Albertsson.

Ey. Kon. Jónsson.