Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 378 . mál.


958. Nefndarálit



um till. til þál. um stefnumótandi byggðaáætlun 1994–1997.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um tillöguna. Á fund hennar komu til viðræðna frá forsætisráðuneytinu Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri og Guðmundur Árnason deildarstjóri og frá Byggðastofnun Guðmundur Malmquist forstjóri og Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður þróunarsviðs, frá Alþýðusambandi Íslands Guðmundur Gylfi Guðmundsson hagfræðingur og Björn Grétar Sveinsson miðstjórnarfulltrúi, frá Stéttarsambandi bænda Haukur Halldórsson formaður og Baldvin Jónsson, frá Atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja Friðfinnur Skaftason og Guðrún Eyjólfsdóttir, frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður, Þórður Skúlason framkvæmdastjóri og Sigríður Stefánsdóttir, Björn Arnórsson frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Árni Benediktsson frá Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, Ingibjörg Broddadóttir, deildarsérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu, Halldór Árnason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, og Elsa Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri átaksverkefnis í atvinnumálum kvenna á Vestfjörðum. Þá bárust nefndinni greinargerðir frá forsætisráðuneytinu, landbúnaðarráðuneytinu, sjávarútvegsráðuneytinu, iðnaðarráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Elsu Guðmundsdóttur.
    Tillaga þessi er lögð fyrir Alþingi í samræmi við 8. gr. laga um Byggðastofnun, nr. 64/1985, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1991. Snemma árs 1991 var lögum um Byggðastofnun breytt í því markmiði að leggja aukna áherslu á atvinnuþróunarstarf og áætlanagerð af hendi stofnunarinnar. Með setningu reglugerðar um Byggðastofnun, nr. 51/1992, var þessi áherslubreyting Alþingis gerð enn skýrari. Með breytingunum var lögbundið að Byggðastofnun geri tillögu að stefnumótandi áætlun í byggðamálum til fjögurra ára í senn sem forsætisráðherra leggur fyrir Alþingi. Skal þar koma fram stefna ríkisstjórnarinnar í byggðamálum og tengsl hennar við almenna stefnu í efnahags- og atvinnumálum, svo og við áætlanir á sviði opinberrar þjónustu í landinu. Við gerð byggðaáætlunar hefur Byggðastofnun samráð við fjölmarga aðila, þar á meðal ráðuneyti, Þjóðhagsstofnun, sveitarfélög og samtök þeirra. Stjórn Byggðastofnunar fjallar um stefnumótandi hluta byggðaáætlunar við undirbúning hennar og fylgist með framkvæmd þeirra þátta hennar sem henni er falið af Alþingi. Í þeirri tillögu, sem hér liggur fyrir, er gerð grein fyrir meginmarkmiðum byggðastefnu og greint í fjórum liðum hvaða stefnumál verður lögð áhersla á til ársloka 1997.
    Lagt er til að tillagan verði samþykkt með breytingum sem gerðar eru tillögur um á sérstöku þingskjali. Ólafur Þ. Þórðarson skrifar undir nefndarálitið með fyrirvara en stendur ekki að breytingartillögunum.
    Lögð er til breyting á d-lið 1. tölul. og er lagt til að horft verði til landgæða í aðgerðum ríkisvaldsins á jaðarsvæðum.
    Lagt er til að c-liður 2. tölul. falli brott, en þar segir að forsætisráðherra leggi fram skýrslu um framkvæmd fjögurra ára áætlana um hvern þjónustumálaflokk sem verði grundvöllur fjárlagagerðar til lengri tíma. Gefast mun tækifæri til umræðna um byggðamál í umræðum um ársskýrslu Byggðastofnunar sem lögum samkvæmt fara fram ár hvert, auk þess sem stefnumótandi áætlun verður endurskoðuð og því til umræðu annað hvert ár. Þykir c-lið því vera ofaukið.
    Þá er lögð til veruleg breyting á töflu undir d-lið 4. tölul. sem sýnir framlög til byggðamála. Eftir að tillagan kom til nefndarinnar kom í ljós að taflan þarfnaðist gagngerrar endurskoðunar. Breytingar á töflunni eru einkum tilkomnar vegna þess að ekki var rétt farið með framlög til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins í fyrri töflu. Í þeirri töflu var gert ráð fyrir að samanlögð framlög til byggðamála á tímabilinu mundu ekki lækka og að lækkun framlaga til Framleiðnisjóðs kæmi fram í samsvarandi hækkun framlaga til Byggðastofnunar. Við gerð tillögu að leiðréttri töflu er þetta lagt til grundvallar, en framlög til Framleiðnisjóðs eru 50 m.kr. hærri samkvæmt búvörusamningi á næsta ári (1995) en taflan gerði ráð fyrir. Árið 1996 munar einnig 50 m.kr. og á árinu 1997 munar 100 m.kr.
    Auk þessa atriðis er varðar Framleiðnisjóð eru gerðar nokkrar leiðréttingar á töflunni. Þær eru eftirfarandi:
    1. Samkvæmt þingsályktunartillögunni átti ekki að leggja fé í afskriftarsjóð Byggðastofnunar á yfirstandandi ári, en samkvæmt rekstraráætlun stofnunarinnar fyrir 1994 verða lagðar 60 m.kr. í afskriftarsjóð og hefur stofnunin raunar þegar gert það. Nauðsynlegt var að leiðrétta gerðan hlut, en að öðru leyti breytast framlög í afskriftarsjóð ekki frá því sem upphaflega var ætlað og verða þau 25 m.kr. á ári út tímabilið sem tillagan nær til.
    2. Hlutfallsleg skipting framlaga til atvinnuráðgjafar og nýsköpunar breytist lítils háttar og þau framlög lækka lítillega vegna þess sem að ofan er getið, þ.e. að framlög til Byggðastofnunar eru lægri en áður var miðað við en framlög til Framleiðnisjóðs aftur á móti hærri.
    3. Framlag félagsmálaráðuneytisins til atvinnumála kvenna er fellt niður, enda er styrkjum til atvinnusköpunar meðal kvenna nú ráðstafað óháð búsetu þeirra á landinu.
    4. Árlegt framlag til að stuðla að fjárfestingu erlendra aðila hér á landi er fellt niður, en undirbúningur að því verkefni fer nú fram á vegum viðskiptaráðuneytisins.
    Í nefndinni var fjallað um framkomnar breytingartillögur við málið frá fulltrúum stjórnarandstöðunnar og var m.a. rætt um breytingartillögu við málið frá þingmönnum Kvennalistans þar sem lagt er til að sérstakur atvinnuráðgjafi fyrir konur verði ráðinn í öllum landshlutum. Meiri hlutinn bendir á að með samþykkt breytingartillögu Kvennalistans yrðu ekki aðeins lagðar auknar skyldur á Byggðastofnun til fjárframlaga heldur einnig á viðkomandi sveitarfélög. Meiri hlutinn hefur fullan skilning á þeim sjónarmiðum sem liggja að baki breytingartillögunni um að nauðsynlegt sé að huga að atvinnuskapandi verkefnum fyrir konur. Meiri hlutinn vill í þessu sambandi minna á að þegar eru konur starfandi sem atvinnuráðgjafar. Jafnframt vill meiri hlutinn benda á að í a-lið 4. tölul. þingsályktunartillögunnar er tekið fram að áfram verði stutt við verkefni sem efla framtak kvenna í atvinnumálum.
    Björn Bjarnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 13. apríl 1994.



Sólveig Pétursdóttir,

Ey. Kon. Jónsson.

Gísli S. Einarsson.


form., frsm.



Ingi Björn Albertsson.

Ólafur Þ. Þórðarson,


með fyrirvara.