Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 246 . mál.


1014. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
    Á eftir orðunum „sem við á“ í 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I, sbr. 23. gr. laga nr. 111/1992, um breytingar í skattamálum, (frádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri), kemur: svo og stofnfjárbréf í sparisjóðum samkvæmt lögum nr. 43/1993, um viðskiptabanka og sparisjóði, enda séu ekki lagðar hömlur á viðskipti með bréfin umfram það sem leiðir af ákvæðum kafla II C í þeim lögum.