Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 77 . mál.


1086. Nefndarálit



um till. til þál. um styttingu vinnutíma.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk um það umsagnir á 116. og 117. löggjafarþingi frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, Alþýðusambandi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands, Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Jafnréttisráði, Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og Vinnuveitendasambandi Íslands.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með svofelldri

BREYTINGU:



    Tillgr. orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera skýrslu um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á meðal Evrópuþjóða, einkum annarra norrænna ríkja, sem miða að styttingu vinnutíma og fjölgun starfa. Í skýrslunni verði gerð grein fyrir eðli og umfangi aðgerða, kostnaði og árangri eftir því sem upplýsingar frá stjórnvöldum, aðilum vinnumarkaðar eða alþjóðastofnunum gefa tilefni til.

Alþingi, 26. apríl 1994.



Rannveig Guðmundsdóttir,

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.

Eggert Haukdal.


form., frsm.



Ingibjörg Pálmadóttir.

Kristinn H. Gunnarsson.

Jón Kristjánsson.



Guðjón Guðmundsson.

Einar K. Guðfinnsson.

Sigbjörn Gunnarsson.