Ferill 201. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 201 . mál.


1297. Breytingartillögur



við frv. til l. um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Frá Hjörleifi Guttormssyni og Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Við 6. gr. Fyrri málsliður 1. mgr. orðist svo: Villt dýr, þar með talin þau sem koma reglulega eða kunna að berast til landsins, eru friðuð, sbr. þó undantekningar varðandi einstakar tegundir í VI. kafla og nýtingu hefðbundinna hlunninda í VII. kafla laga þessara.
    Við 12. gr. Greinin orðist svo:
                  Refir eru friðaðir, sbr. þó 2. mgr. Óheimilt er að eyðileggja greni. Ekki má láta hunda hlaupa um á greni á grenjatímanum né hafa þar óþarfa umgang. Sveitarstjórnir skulu halda skrá yfir öll þekkt greni í sínu umdæmi ásamt lýsingu á þeim og skulu afrit af skránum varðveitt hjá veiðistjóraembættinu.
                  Þar sem umhverfisráðherra ákveður, að fengnum tillögum veiðistjóraembættis, að nauðsynlegt sé að láta veiða refi til þess að koma í veg fyrir tjón af þeirra völdum er sveitarstjórn skylt að ráða skotmann til grenjavinnslu og skal hann hafa með sér aðstoðarmann. Þar sem veiðistjóraembætti og sveitarstjórn þykir betur henta má skipuleggja refaveiðar að vetrarlagi í stað grenjavinnslu og fela þá skotmanni með sama hætti framkvæmdina. Öðrum eru refaveiðar óheimilar, en þó mega bændur og æðarræktendur, eða aðilar á þeirra vegum, skjóta refi sem búfénaði eða æðarvarpi stafar bein hætta af. Skal viðkomandi tilkynna skotmönnum um slíka veiði svo fljótt sem auðið er. Eigi fleiri sveitarfélög sameiginlegt upprekstrarland skulu sveitarstjórnir fela stjórn viðkomandi upprekstrar- eða fjallskilafélags umsjón refaveiða samkvæmt málsgrein þessari.
                  Umhverfisráðherra ákveður árlega viðmiðunartaxta launa til skotmanna og aðrar greiðslur fyrir unna refi sem veiddir eru skv. 2. mgr. Viðkomandi sveitarstjórnir skulu árlega gefa skýrslur til veiðistjóraembættis um refaveiðar og kostnað við þær hver á sínu svæði og endurgreiðir ríkissjóður þá helming kostnaðar við veiðarnar eftir viðmiðunartöxtum. Umhverfisráðherra getur í samráði við veiðistjóra heimilað sveitarstjórnum að ráða skotmenn til refaveiða á tilteknum svæðum til viðbótar því sem ákveðið hefur verið skv. 2. mgr. og falla þær ekki undir greiðsluskyldu ríkissjóðs.

Greinargerð.


    Breytingartillögur þessar eru efnislega samhljóða 6. og 12. lið breytingartillagna meiri hluta umhverfisnefndar sem fluttar voru við 2. umræðu um málið en voru þá kallaðar aftur. Nýjar tillögur frá meiri hluta umhverfisnefndar, sem að hluta til er skipaður öðrum þingmönnum, hafa verið fluttar fyrir 3. umræðu, sbr. þskj. 1267, og víkja þær í veigamiklum atriðum frá niðurstöðu meiri hlutans eftir umfangsmikla vinnu í umhverfisnefnd fyrir 2. umræðu. Breytingartillaga við 7. gr. er sömuleiðis frávik frá tillögu sem samþykkt var við 2. umræðu.