Ferill 548. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 548 . mál.


1310. Tillaga til rökstuddrar dagskrár



í málinu: Frv. til l. um Lífeyrissjóð sjómanna.

Frá Svavari Gestssyni.



    Þar sem fram hafa komið ábendingar um að ríkissjóður eigi að standa undir kostnaði Lífeyrissjóðs sjómanna vegna 60 ára lífeyrisaldurs sjómanna felur Alþingi ríkisstjórninni að kanna þessar ábendingar og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.